Mótaðu framtíðina
Sem starfsmaður Alcoa gegnir þú mikilvægu hlutverki í að skapa verðmæti og nýta tækifæri til árangurs. Hjá okkur er sérhver starfsmaður liðsmaður, hugmyndasmiður og þátttakandi í að móta framtíðina.
Upplýsingatæknisérfræðingur
(Iðnstýringar)
Við leitum að öflugum einstaklingi til starfa við forritun, þróun og rekstur iðnstýringa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd sjálfvirkni, PLC-forritun og skjámyndakerfum fyrir framleiðslu.
Við vinnum aðallega með Rockwell Automation / Allen-Bradley búnað og lausnir og er reynsla af því umhverfi mikill kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Forritun, þróun og viðhald PLC-iðnstýringa
Þróun og viðhald HMI- og SCADA-skjámyndakerfa
Hönnun, prófanir og innleiðing nýrra lausna og virkni
Bilanagreining, rekstur og endurbætur á stýri- og sjálfvirknikerfum
Umsjón með högun, skjölun og stöðlun iðnstýrikerfa
Þátttaka í og verkefnastjórnun tæknilegra verkefna og umbóta
Greining og úrvinnsla gagna úr framleiðslukerfum
Tæknileg ráðgjöf og stuðningur við notendur
Samstarf við framleiðslu, viðhald og aðrar tæknigreinar
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla á sviði sjálfvirkni, rafmagns-, tölvu- eða iðntækni eða sambærilegu sviði
Þekking eða reynsla af PLC-forritun og iðnstýringum
Reynsla af Rockwell Automation / Allen-Bradley búnaði og hugbúnaði er kostur
Þekking á iðnaðarnetum og samskiptum stýrikerfa er kostur
Góð hæfni til bilanagreiningar og lausnar tæknilegra vandamála
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og góð hæfni til teymisvinnu
Góð samskiptafærni og þjónustulund
Góð íslensku- og enskukunnátta
Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur. Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar. Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.
Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristmundsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið anna.kristmundsdottir@alcoa.com .
Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri. Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is .
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember
______________________________________________________________________________
IT Application Senior Analyst
(Industrial Automation)
We are looking for a skilled and motivated individual to join our team, working with the programming, development, and operation of industrial control systems. The role includes a variety of tasks related to automation, PLC programming, and HMI/SCADA systems used in our production processes.
We mainly work with Rockwell Automation / Allen-Bradley equipment and solutions, and experience with these systems is a strong advantage.
Key Responsibilities
Programming, development, and maintenance of PLC-based industrial control systems
Development and maintenance of HMI and SCADA systems
Design, testing, and implementation of new solutions and functionality
Troubleshooting, operation, and improvement of control and automation systems
Configuration management, documentation, and standardization of industrial control systems
Participation in and management of technical projects and improvement initiatives
Analysis and processing of data from production systems
Technical advice and support for users
Collaboration with production,…