JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélaga til starfa við rafsuðu og samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allt nýtt starfsfólk fær viðeigandi þjálfun.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi. Framleiðslan í JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.
Helstu verkefni
Fjölbreytt smíði úr ryðfríu stáli
Samsetningu tækja og búnaðar
Hæfniskröfur
Áhugi á rafsuðu (TIG) er skilyrði
Reynsla af rafsuðu er mikill kostur
Sveinspróf eða haldbær reynsla í málmiðngreinum (nemar koma til greina)
Góð íslenskukunnátta og/eða enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun í iðnaði
Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
Jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð
Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson, Hreinn.Ornolfsson@jbtmarel.com .
Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.